top of page

Kjörtímabil framkvæmda og uppbyggingar

Á yfirstandandi kjörtímabili hefur verið ráðist í umfangsmiklar fjárfestingar og markvissa uppbyggingu grunnstoða sveitarfélagsins. Í meirihlutasamstarfi við Framsókn 2022-2026 hefur Okkar Hveragerði unnið að því að efla Hveragerðisbæ og bæta þjónustu við íbúa.

Helstu framkvæmdir Hveragerðisbæjar

  • Ný viðbygging við Leikskólann Óskaland var tekin í notkun vorið 2025 og öllum börnum frá 12  mánaða aldri tryggt leikskólapláss. Starfsmannaaðstaða einnig bætt.

  • Ný viðbygging við Grunnskólann í Hveragerði var tekin í notkun haustið 2025 með fullkomnu mötuneyti, samkomusal, nýjum skólastofum og stoð- og stuðningsrýmum.

  • Nýr fullkominn gervigrasvöllur í fullri stærð verður tekinn í notkun í apríl og maí 2026.

  • Þarfagreining og vinna við hönnun á nýju íþróttahúsi við Skólamörk hófst árið 2024, bygging hófst árið 2025 og verður tekið í notkun árið 2027.

  • Þarfagreining við stækkun skólphreinsistöðvar var sett í ferli árið 2023, hönnun hófst 2025, framkvæmdir hefjast árið 2026 og fyrsti áfangi verður tekinn í notkun árið 2027.

  • Ný útveggjaklæðning á heimilið við Birkimörk árið 2024.

  • Endurbætur í Grunnskólanum í Hveragerði, þar með talið uppsetning loftræstikerfis, vatnsúðarakerfis og nýrra glugga 2022-2025.

njordur grein haus.jpeg
All Photos - 1 of 1 (8).jpeg

Bætt þjónusta

  • Lækkun leikskólagjalda um 70% frá 2022 til 2026. 

  • Þjónustusamningur við Íþróttafélagið Hamar árin 2024-2026 sem gerði íþróttafélaginu Hamri kleift að ráða til sín framkvæmdastjóra. 

  • Samningur við Íþróttafélagið Hamar og fjármögnun í fjölgreinaverkefni félagsins frá 2022.

  • Viljayfirlýsing um 24 námsmannaíbúðir samþykkt í mars 2026.

  • Regnbogafáni málaður á Skólamörk og Breiðumörk frá árinu 2023.

  • Fjölgun félagslegs leiguhúsnæðis árin 2024, 2025 og 2026.

  • Hækkun frístundastyrks um 96% frá 2022 til 2026.

  • Gjaldfrjálsum skólamáltíðum fyrir grunnskólabörn komið á frá hausti 2024.

  • Foreldragreiðslur vegna barna sem ekki komast inn á leikskóla við 12 mánaða aldur frá árinu 2022.

  • Langtímasamningur í fyrsta skipti um Hengil Ultra hlaupið árið 2026.

  • Nýtt velferðar- og fræðslusvið með auknum stöðugildum og bættri þjónustu komið á fót.

  • Innleiðing á nýju kerfi við sorphirðu og sorpflokkunar árið 2023.

  • Samráðhópi um málefni fatlaðs fólks komið á fót árið 2024.

  • Ungmennaráði komið á fót árið 2025.

  • Ungmennahús fyrir fólk á aldrinum 16-20 ára opnað árið 2026.

  • Verkefninu Gott að eldast hrundið af stað árið 2025 í samstarfi við Heilbrigðisstofnun Suðurlands og Dvalarheimilið Ás.

  • Skemmtilegri hundasvæði með leiktækjum og aðstöðu. Nýtt smáhundasvæði við Grænumörk 2025.

Sterkari stjórnsýsla

  • Úttekt á stjórnsýslu Hveragerðisbæjar fór fram 2022-2023.

  • Ný stefna Hveragerðisbæjar 2023-2028 kynnt í maí 2023.

  • Nýtt og endurbætt stjórnskipulag Hveragerðisbæjar innleitt árið 2023 og 2026, þ.m.t. með nýjum störfum atvinnu-, markaðs- og menningarfulltrúa og löglærðs bæjarritara. 

  • Opnir fundir með bæjarstjóra, Pétri G. Markan, frá 2024.

  • Samráð við íbúa virkjað í gegnum íbúagátt, s.s. vegna fjárhagsáætlunar og uppsetningu leiktækja frá 2022. 

  • Viðsnúningur í rekstri Hveragerðisbæjar, úr 365 m.kr. tapi árið 2021 í 200 m.kr. hagnað árið 2024.

falleg blom (1)_edited.jpg
falleg blom (1)_edited.jpg
falleg blom (1)_edited.jpg
Library - 1 of 1_edited.jpg
Library - 1 of 1_edited.jpg

Áframhaldandi uppbygging Hveragerðis

  • Vinna við nýtt aðalskipulag Hveragerðisbæjar frá 2022 og tekur gildi í maí 2026.

  • Gatnagerð og úthlutun lóða í Álfafelli, Álfakletti, Breiðumörk og Tröllahrauni 2023 til 2026.

  • Samningur við Reykjadalsfélagið um uppbyggingu við Árhólma árið 2024. Verðmæti samningsins er um 800-900 m.kr. fyrir Hveragerðisbæ. 

Skipulagsvinna við þróunarreiti við Fagrahvamm og Grundarreit við Heiðmörk 2024-2026

Hagsmunagæsla fyrir Hveragerðisbæ

  • Öflug hagsmunagæsla gagnvart áformum Sveitarfélagsins Ölfuss og Orkuveitu Reykjavíkur um virkjun í Ölfusdal á árunum 2023–2024. 

  • Andmæli við töfum á færslu þjóðvegar í samgönguáætlun 2022–2026. 

  • Þrýstingur á stjórnvöld um fjölgun hjúkrunarrýma í Hveragerði. 

20250306_174412.jpg
bottom of page