top of page
78_edited.jpg

Okkar Hveragerði stofnað

Bæjarmálafélagið Okkar Hveragerði var stofnað á fyrstu mánuðum ársins 2018 af hópi áhugasamra íbúa sem vildu efla faglega og málefnalega umræðu um bæjarmál. Félagið bauð fram lista í sveitarstjórnarkosningum sama vor og hlaut 33% atkvæða og tvo bæjarfulltrúa af sjö. Í kosningunum 2022 bætti framboðið enn við sig, fékk tæplega 40% atkvæða og þrjá bæjarfulltrúa kjörna og varð þar með stærsta stjórnmálaaflið í Hveragerði. Á kjörtímabilinu 2022–2026 hefur Okkar Hveragerði starfað í meirihluta með Framsókn og samstarfið gengið vel.

Óháð flokkspólitík
Okkar Hveragerði er óháð stjórnmálaflokkum sem bjóða fram á landsvísu og ber því eingöngu ábyrgð gagnvart íbúum bæjarins en ekki flokksmaskínu í Reykjavík. Í fræðilegri umræðu um sveitarstjórnarstigið hefur verið bent á að í stjórnmálasamtökum sem eru ekki tengd landsflokkunum sé meiri pólitísk valddreifing. Með öðrum orðum að pólitískum ákvörðunum er ekki miðstýrt í bæjarmálafélögum sem eru óháð landsflokkunum, þar eru kjörnir fulltrúar sjálfstæðari í ákvörðunum sínum og taka mið af aðstæðum og þörfum samfélagsins hverju sinni. Í því ljósi má líta á Okkar Hveragerði sem raunveruleg grasrótarsamtök, sprottin úr samfélaginu sjálfu og starfi á forsendum þess.


Málefni fjölskyldna og fagleg stjórnsýsla
Á kjörtímabilinu sem nú er að ljúka hefur Okkar Hveragerði lagt sérstaka áherslu á málefni barna og fjölskyldna og náð verulegum árangri á því sviði á síðustu fjórum árum. Samhliða því hefur verið unnið markvisst að því að efla stjórnsýslu bæjarins, gera hana faglegri, skilvirkari og gagnsærri, og tryggja sjálfbæran rekstur Hveragerðisbæjar til framtíðar. Þannig höfum við lagt traustan grunn að áframhaldandi uppbyggingu samfélagsins og bættum lífskjörum íbúa.

Okkar Hveragerði 2026
Nú undirbýr Okkar Hveragerði framboð í þriðja sinn. Það er verulegt afrek að halda úti sjálfstæðu bæjarmálafélagi í nær áratug, knúið áfram af sjálfboðaliðum sem vilja byggja upp vandaða og ábyrga þjónustu við bæjarbúa. Öll sem hafa áhuga á að starfa með Okkar Hveragerði eru velkomin.

Stjórn Bæjarmálafélags Okkar Hveragerðis 2026 

Jesse Austin

(123)456-789

Chloe Wilson

(123)456-789

James Williams

(123)456-789

Jessica Davis

(123)456-789

Fyrri stjórnir

Nafn
Nafn
Nafn
Nafn

​ártal

​ártal

Nafn
Nafn
Nafn
Nafn

​´Arsreikningar

20250306_174456.jpg

Describe the product here. Include important features, pricing and other relevant info. Consider adding an image or video of the product.

​Ársreikningur 2024

Describe the product here. Include important features, pricing and other relevant info. Consider adding an image or video of the product.

​Ársreikningur 2023

Describe the product here. Include important features, pricing and other relevant info. Consider adding an image or video of the product.

​Ársreikningur 2022

Describe the product here. Include important features, pricing and other relevant info. Consider adding an image or video of the product.

​Ársreikningur 2021

Describe the product here. Include important features, pricing and other relevant info. Consider adding an image or video of the product.

​Ársreikningur 2020

Describe the product here. Include important features, pricing and other relevant info. Consider adding an image or video of the product.

​Ársreikningur 2019

Describe the product here. Include important features, pricing and other relevant info. Consider adding an image or video of the product.

​Ársreikningur 2018

20250306_174456.jpg

Lög félagsins

bottom of page