
FRÉTTIR OG GREINAR



_edited_edited.jpg)
.jpeg)
FÓLKIÐ Í OKKAR HVERAGERÐI

Framboðslisti 2026
Þann 28. mars´26, á 8 ára afmæli bæjarmálafélagsins Okkar Hveragerði, var kynntur framboðslisti til bæjarstjórnarkosninga 2026 og glæný heimasíða sett í loftið. Það er gleðilegt að kynna með stolti fjölbreyttan lista með fjölda nýrra og öflugra einstaklinga í bland við reyndari fulltrúa framboðsins.
Ykkar Hveragerði
Okkar Hveragerði er bæjarmálafélag sem hefur eingöngu hagsmuni íbúa og sveitarfélagsins að leiðarljósi, en ekki stjórnmálaflokka með höfuðstöðvar í Reykjavík. Við erum raunveruleg grasrótarsamtök sem erum sprottin upp úr samfélaginu sjálfu og störfum á forsendum þess og fyrir það. Við trúum á valddreifingu, sjálfstæðar ákvarðanir og raunverulega grasrót í stjórnmálum. Á síðasta kjörtímabili höfum við lagt sérstaka áherslu á fjölskyldur, bætt þjónustu og styrkt stjórnsýslu bæjarins þannig að hún sé fagleg, skilvirk og gagnsæ. Við erum að byggja upp sjálfbært samfélag þar sem þarfir íbúanna eru alltaf í forgrunni.

4. sæti
SANDRA LIND BRYNJARSDÓTTIR
Grunnskólakennari og deildarstjóri á stuðningsheimili fyrir börn

5. sæti
ÍVAR DAGUR SÆVARSSON
Tónlistarmaður og nemi

6. sæti
BRYNJA HRAFNKELSDÓTTIR
Skordýrafræðingur og teymisstjóri

7. sæti
EYÞÓR ATLI OLSEN FINNSSON
Hlaðvarpsþáttastjórnandi og öryggisráðgjafi

8. sæti
EMBLA WERNER GUÐLEIFSDÓTTIR
Stuðningsfulltrúi í Grunnskólanum í Hveragerði

9. sæti
GUÐJÓN ÓSKAR KRISTJÁNSSON
Deildarstjóri fasteigna, húskerfa og svæða virkjana ON

10. sæti
HALLDÓRA JÓNA GUÐMUNDSDÓTTR
Framreiðslusveinn

11. sæti
HRAFN ANDRÉS HARÐARSON
Bókavörður og skáld

12. sæti
ANNA JÓRUNN STEFÁNSDÓTTIR
Talmeinafræðingur, sellóleikari og kennari

13. sæti
NJÖRÐUR SIGURÐSSON
Sagnfræðingur og bæjarfulltrúi

14. sæti
SANDRA SIGURÐARDÓTTIR
Þingmaður og forseti bæjarstjórnar

Okkar Hveragerði
Bæjarmálafélagið þitt
Bæjarstjóraefni Okkar Hveragerðis
Pétur G. Markan

Gott samstarf, virðing og velgjörð í sveitarstjórnarmálum er ekki bara kostur - það er beinlínis forsenda fyrir árangri, velferð og uppbyggingu samfélagsins alls. Það er ekkert sem hefur meiri áhrif á lífsgæði íbúanna en samhentur meirihluti - vel upplýst og samstarfsfús bæjarstjórn. Ef eitthvað útskýrir gott gengi síðustu ára þá er það að þessi gildi hafa eflst til muna.
Öflug samvinna, fagmennska, hópefli og vilji til að lenda flóknum málum hefur einkennt þann tíma sem ég hef starfað sem bæjarstjóri í Hveragerði, það eru forréttindi að vinna með slíkum hópi.
Ég er þakklátur fyrir að vera bæjarstjóraefni meirihlutaflokka þessa kjörtímabils, bæjarmálafélagsins Okkar Hveragerðis og Framsóknar í Hveragerði. Meðmæli sem ég tek af auðmýkt og alvöru. Mikilvægast er samt að málefni flokkanna fái sviðið, frambjóðendur hafi orðið. Þar ræðst framtíð bæjarins.
Það eru spennandi tímar framundan í Hveragerði, bæ í gæðavexti. Áskoranir sem þurfa fyrst og fremst samhent átak, uppbyggingu sem kallar á ríkt samtal og sigra sem við ætlum að fagna saman.
Það er sama hvernig á það er horft - kjörtímabilið, sem nú sér roða í vestri, er eitt það uppbyggilegasta í sögu bæjarins. Það er afrakstur kröftugrar samvinnu.
Það er fréttaefni hvað velst mikið af gæðafólki á alla framboðslista flokkana sem eru að bjóða fram í bænum. Það er ekki sjálfsagt - það er afleiðing af heilbrigðum, vönduðum og gegnheilum stjórnmálum sem stunda röklega umræðu, virkt samtal og gagnkvæma virðingu - mennsku í stað hörku. Það gerir þennan mikilvæga vettvang bæjarmála eftirsóknarverðan.
Við skulum ekki gleyma að árangur bæjarfélaga er ekki einungis mældur í umfangi rekstrarafgangs. Hitt heldur í styrk lýðræðis - gæðum mennsku og menningar.
Skrefum þetta saman.
Við skulum ekki gleyma að árangur bæjarfélaga er ekki einungis mældur í umfangi rekstrarafgangs. Hitt heldur í styrk lýðræðis - gæðum mennsku og menningar.
Skrefum þetta saman.
BÆJARMÁLAFÉLAGIÐ,OKKAR HVERAGERÐI
STENDUR VIÐ ORÐ SÍN
ÁHERSLUMÁL OG FRAMTÍÐIN
FJÖLSKYLDUVÆNT SAMFÉLAG MEÐ RAUNVERULEGUM UMBÓTUM
MENNTUN SEM GRUNNSTOÐ SAMFÉLAGSINS
VELFERÐARKERFI SEM NÆR TIL ALLRA - FRÁ BÖRNUM TIL ELDRIBORGARA
HÚSNÆÐIS OG BYGGÐARMÁL-BÆR SEM VEX MEÐ ÁBYRGÐ
GAGNSÆI, ÍBÚALÝÐRÆÐI OG DREIFING VALDS
NÝIR TEKJUSTOFNAR OG UPPBYGGING
SAMSTARF

_edited.jpg)
_edited.jpg)
.jpeg)
.jpeg)
_edited.jpg)

Vertu í sambandi
Við viljum fá þig með okkur í hópinn!
Bæjarmálafélagið Okkar Hveragerði vinnur fyrir þig





















.jpg)




